Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:
-Kynning á stofnun þekkingarhópa
-Stofnun þekkingarhóps um Rapid Prompting method

Á fundinum verður fyrsti þekkingarhópurinn stofnaður. Þekkingarhópurinn verður um “Rapid Prompting Method” og skyldar aðferðir. Þessi aðferð vakti athygli í myndinni Sólskinsdrengurinn.

Margrét Dagmar Ericsdóttir mun mæta á þennan fund og deila með okkur sinni reynslu sem leikmaður og benda okkur á hvar hægt sé að fá frekari upplýsingar.

Fundartími: Miðvikudaginn 18. febrúar, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

Þekkingarsetur um einhverfu

Umsjónarfélag einhverfra hefur á undanförnum árum stuðlað á margvíslegan hátt að því að auka fagþekkingu á einhverfu á Íslandi. Þetta hefur félagið gert með útgáfu bóka, tímarita, fræðslufundum, bókasafni og styrkja til fræðsluferða svo fátt eitt sé nefnt. Stjórn félagsins hefur ákveðið að bæta enn frekar í þennann þátt í rekstri félagsins og undir yfirskrift “Þekkingarsetur um einhverfu”. Á næstu vikum verður því lögð áhersla á að styrkja bókasafn félagsins, styrkja útgáfu á myndböndum, bókum og bæklingum og stofnun þekkingarhópa um þau málefni sem brenna á fólki.