Aðalfundur

Aðalfundur verður þann 19. apríl klukkan 18:00
Staðsetning: Kaffirót kaffihús, Hafnarstræti 17, 101 Reykjavík

SKYN, Félag Nemenda með Sértæka og Falda Námsörðugleika Boðar til aðalfundar, og auglýsir eftir framboðum í stjórn. Auglýst er eftir framboðum formanns, gjaldkera og varaformanns ásamt varamönnum í öll félögin.

SKYN er regnhlífarfélag eða samtök minni nemendafélaga sem hafa með sértæka eða falda námsörðuleika að gera, öllum slíkum félögum er heimilt að óska eftir aðild að SKYN.

Fimm aðildarfélög eru í SKYN og þau halda sinn aðalfund á sama tíma á sama stað sameiginlega með SKYN

Sameiginlegur aðalfundur fimm félaga:
Félag nemenda með Flogaveiki (í tengslum við UNG-Lauf)
Félag nemenda með Lesblindu (Hið Íslenska Dyslexíufelag)
Félag nemenda með ADD og ADHD
Félag nemenda á einhverfurofi
Félag nemenda með Tourette

og samtök þeirra:
SKYN : Félag Nemenda með Sértæka og Falda Námsörðugleika (Regnhlífasamtök)

Svo vill til að starfsemi nokkurra aðildarfélaga SKYN liggja niðri, því eru nýir félagar sem eru að koma í fyrsta sinn hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar. Við í stjórn SKYN getum veitt aðstoð og ráðgjöf á fyrstu mánuðum á meðan verið er að koma félagsstarfinu á kjölinn. Félagsstarfið er fyrir alla sem hyggjast hefja eða ljúka námi eða hafa nýlega fallið úr námi eða þá hafa lokið námi nýlega. Námsstigin sem félögin starfar á eru iðn og menntaskóli, háskóli og framhaldsmenntun í háskólum.

Dagsskrá aðalfundar
1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Lagabreytingar.
3. Stjórnarkjör.
4. Skýrslur Stjórna lagðar fram og reikningar samþykktir.
5. Fundagerð aðalfundar lögð fram og samþykkt.
6. Fundaslit.

Ný lög liggja til samþykktar fyrir öll félögin og þarf aðalfundur að samþiggja þau þannig að þau hljóti gildi.

Tengiliður vegna aðalfundar
Kári Gunnarsson s: 864-5189
Tölvupóstur: [email protected]