Um félagið

Skyn, félag nemenda með sértæka námsörðuleika, var stofna í apríl 2007 og var hugsað sem heildarsamtök í stað sértækra hagsmunafélaga sem voru áður starfrækt.

Markmið

* Gefa lesblindum, ADHD og Tourette, og öllum þeim sem telja sig hafa sértæka námsörðugleika, tækifæri til að hittast, veita þeim stuðning og auka samheldni þeirra.
* Vera sýnilegt afl innan háskóla og í forsvari þegar málefni félagsins ber á góma. Beita sér fyrir réttindabaráttu félagsins innan og utan háskóla, og vera þrýstihópur fyrir félagsmenn með málefni félagsins.
* Stuðla að aukinni fræðslu, kennslu, umræðu og rannsóknum um málefni hópanna innan sem flestra háskólagreina.
* Tilgangur félagsins er ekki að vera í samkeppni við önnur félög sem fjalla um sömu málefni á öðrum sviðum.

Við hittumst á hverjum miðvikudegi í hádeginu í kaffistofu Odda á milli 12 og 13 fram að jólaprófum 2008
Sendið endilega póst á skyn hjá skyn.is
Ólafur Arason, formaður 699 3123
Friederike Hesselman 843 0161
Kári Gunnarsson 864 5189

--

Lagabreytingar

Tilaga hefur borist um ný lög

--

1. gr. Félagið heitir SKYN Félag nemenda með Sértæka námsörðugleika. Heimili þess og varnarþing í Reykjavík.

2. gr. Félagið stafar í samstarfi við Aðildarfélög SKYN. Þau eru:
Félag nemenda með ADD og ADHD
Félag nemenda á einhverfurófi
Félag nemenda með Flogaveiki
Félag nemenda með Tourette
Félag nemenda með Lesblindu

3. gr. Tilgangur félagsins er:
a) að vinna að hagsmunamálum félagsmanna
b) að stuðla að bættri menntun og aðstöðu félagsmanna.
c) að miðla upplýsingum til félagsmanna
d) að auka tengsl og samvinnu félagsmanna
e) að tilnefna fulltrúa úr röðum félagsmanna í ráð og nefndir
f) að stuðla að útbreiðslu þekkingar, annast útgáfustarfsemi og sinna þýðingarmálum
g) að standa fyrir menningar og skemmtanastarfssemi
h) að vera í samskiptum við sambærileg félög hérlendis og erlendis

4. gr. Félagar: Meðlimir félagsins eru allir er sem eru í aðildarfélögum SKYN.

5. gr. Aðalfundur: Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í september ár hvert og skal boðað til hans með dagskrá með viku fyrirvara. Aðalfundur skipar stjórn fyrir næsta starfsár. Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi.

6. gr. Stjórn: Stjórn félagsins skipa fimm aðilar: formaður, ritari og varaformaður, tveir meðstjórnendur, auk varamanna. Stjórn er skipuð á aðalfundi af aðildarfélögum. Varamenn leysa aðra stjórnarmeðlimi af ef þeir forfallast. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Hlutverk stjórnar er að koma fram fyrir hönd félagsins, boða til fundar þegar ástæða þykir til og hafa frumkvæði að því að tilgangi félagsins sé framfylgt.

7. gr. Félagsfundir: Allir félagsmenn hafa rétt til setu á fundum og hafa þar atkvæðis- og tillögurétt. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum. Þegar taka þarf ákvarðanir varðandi félagið og í nafni þess, ber að boða til félagsfundar með tölvupósti, a.m.k. viku áður en fundur er haldinn. Undantekningalaust skal boða til félagsfundar ef stjórnin hefur í hyggju að skuldsetja félagið. Stjórn boðar til félagsfunda þegar þörf þykir. Einnig getur meirihluti félagsmanna boðað til fundar.

8. gr. Félagið leyst: Ákvörðun um slit félags verður aðeins tekin á aðalfundi sem ráðstafar eignum félagsins til systurfélaga.

9. gr. Lög þessi taka þegar gildi.

Reykjavík, 19. apríl 2010

(Félag nemenda með Sértæka námsörðugleika, kt: 440907-1480)